miðvikudagur, ágúst 15, 2007

Sumarfríið á enda

Jæja það hefur nú ekki mikið gerst hérna í rúmt ár. Ef til vill fékk ég bara of stóran skammt af tölvuviðveru eða ef mig minnir rétt þá var ég orðin svolítið pirruð á veseni á blogger ;-) Kerfið var að frjósa í tíma og ótíma, erfitt að koma inn myndum. Kannski að maður prófi aftur og sjái hvernig gengur núna.
Sumarið er búið að vera alveg meiriháttar. Búin að fara 2svar til Finnlands, sumarhús í Eyjafjarðarsveitinni með fornámsliðinu mínu og síðan fjölskyldunni og svo fórum við gamla settið á Þjóðhátíð í Eyjum. Það var nú alveg kominn tími á okkur að kíkja á þá Eyjamenn - öll börnin okkar búin að dásama hátíðina, þrátt fyrir ofsarok og blautviðri svo við ákváðum að slá til - svona til að halda uppi fjölskylduhefðinni því þau eru náttúrulega hætt að fara. Það var ekki að spyrja að því - veðrið var eins og best var á kosið, rjómablíða og sól og við í frábærum félagsskap.
Er búin að vera á Wiki námskeiði hjá Salvöru Gissurardóttur í 2 daga. Alveg frábært hjá henni eins og venjulega. Maður þarf nú bara að vera í námskeiða áskrift hjá henni því hún fylgist svo vel með.
En nú fer alvaran að taka við - skólinn að byrja svo nú þarf að bretta upp ermar.

þriðjudagur, ágúst 08, 2006

Sjóstöng

Er búin að reyna að setja inn færslur með krækjum en Blogger hefur alltaf frosið þegar kemur að því að senda herlegheitin og svo gleymir maður að taka afrit af færslunni og allt er horfið - þvílíkur pirringur. Nú er öryggið í fyrirrúmi og allt afritað áður en smellt er á Publish eða vistað sem uppkast.
Jæja hvað um það hér er slóðin að síðunni hjá pabba og mynd af aðal aflaklónni sem var tekin þegar við fórum á veiðar í júlí.

Er að klappa lokaverkefninu mínu - meira seinna.

miðvikudagur, júlí 05, 2006

Lokaverkefni og rigning

Var búin að skrifa heilmikla færslu, setja inn myndir og alles, svo þegar ég smelli á publish þá frís allt og ég gleymdi að taka afrit. Ekki í fyrsta skipti - þarf að reyna að muna þetta því þetta er svolítið mikið pirrandi. Blogger er bara ekkert að ráða við þetta greinilega.
Lokaverkefnið gengur hægt og bítandi. Það er seinunnið að taka þetta svona upp í Captivate og svo þarf ég að snurfusa þetta fram og tilbaka, taka út öll uhm og ohm og svoleiðis áður en ég get vistað þetta í verkefnamöppunni góðu, en hvað um það ég er bara þokkalega sátt við að hafa haft þessa rigningu því ekki er gott að sitja inni yfir tölvunni þegar úti er sól og blíða - sorry!!
En ég er nú búin að kíkja aðeins upp frá tölvunni og fara á sjóinn með pabba. S.l. laugardag var fjölskylduferð og vegna þess að smáfólkið fór með fórum við bara út að Helguvík og veiddum heilan helling. Mest af ufsa og smáýsu og nokkra góða þorska. Prófaði að grilla ufsann á ýmsa vegu og það var hið mesta hnossgæti. Vil bara benda fólki á að ufsinn á örugglega eftir að taka við af skötuselnum þegar fram líða stundir. Hér áður fyrr þá var honum bara hent, en þegar útlendingarnir átu hann með bestu lyst fórum við að prófa og viti menn - hann var bara ágætur. Held að þetta verði þannig með ufsann. Prófið bara!!

mánudagur, júní 26, 2006

Dagmar ömmustelpa

Náði ekki að setja myndirnar inn hérna að framan svo nú er að prófa aftur.
Hérna erum við Dagmar með Sóldísi frænku í kvennahlaupinu.


Fyrsti verðlaunapeningurinn:

Dagmar er algjör "pottormur" og þykir fátt skemmtilegra en að fá að sulla og busla - spurning hverjir skemmta sér best ;-)

Jú annars - hengirúmið!! það er ótrúlega skemmtilegt að róla sér í því:

laugardagur, júní 24, 2006

Tíminn flýgur hratt

Ýmislegt hefur nú gerst síðan ég skrifaði hérna síðast. Bandaríkjadvölin var algjör sæla. Held að Arnar sé með verslunargenin mín því hann sló mér alveg við í mollunum. Eftir páska var rúm vika eftir í skólanum og síðan tóku prófin við. Ég náði að ljúka vettvangsnáminu mínu hjá Ester í Gagnasmiðju KHÍ þarna seinni partinn í maí. Það var rosalega fínt. Ester er náttúrulega algjör engill og snillingur - lærði heilan helling hjá henni.
Njörður kom heim 23. apríl - gerði lokaverkefni í HR með hópnum sínum og fékk 10 (að sjálfsögðu). Guðrún og Dagmar komu síðan í lok maí og ég fékk að hafa ömmu stelpuna mína og kynnast þessari yndislegu veru. Tíminn líður svo hratt að fyrr en varði voru þau farin og við sitjum eftir og yljum okkur við minningar og myndir.
Nú er að bretta upp ermar og byrja á lokaverkefninu.

fimmtudagur, apríl 06, 2006

Páskafrí og gifting framundan.

Jæja þá er bara alveg að koma páskafrí. Verð bara rosalega fegin -er orðin svolítið lúin. Ætlum að skella okkur til Magga frænda sem býr á Long Island. Er búin að panta miða fyrir okkur á Blue mans group. Ég sá sýninguna að vísu í London í janúar, en hún er það góð að ég hlakka til að sjá hana aftur með strákunum mínum - algjör snilld. Svo ætlum við bara að hafa það huggulegt. Kíkja í bowling, golf, mollin og hvað það sem okkur dettur í hug.
Lokaverkefninu mínu í margmiðlunaráfanganum miðar frekar hægt. Ég er ekki alveg að ná sambandi við Mediator, en það kemur vonandi. Ætla þó að reyna að hvíla mig sem mest frá tölvunni á meðan ég er í USA (þó maður kíki aðeins þarna inn). Verð í vettvangsnáminu mínu hjá Ester allan daginn á morgun og ætla að hitta pottastelpurnar mínar úr Rafiðnaðarskólanum í hádeginu.
Svo eru aðal fréttirnar!! Helga og Svenni ætla að ganga í það heilaga 9.9.06. Byrja að undirbúa það strax og ég kem úr páskafríinu.
Ekki má gleyma því að Njörður kemur daginn eftir að við komum heim. Hef ekki séð strákinn minn í 10 mánuði - nema náttúrulega í vefmyndavél. Hlakka alveg rosalega til að geta knúsað sætasta stóra strákinn minn ;-)

mánudagur, mars 13, 2006

Staðlotan m.m.

Það var rosalega gaman og gagnlegt í staðlotunni. Lærði almennilega á Audacity forritið. Get nú farið að nota alls konar "fítusa" sem ég kunni ekki á áður. Fórum m.a. í heimsókn til Björgvins Ívars í Langholtsskóla. Hann sýndi okkur hvernig á að búa til leirkarla myndband. Sniðugur strákur hann Björgvin. Klippti svo myndskeiðið mitt en er ekki búin að ganga almennilega frá því. Þorvaldur sýndi okkur síðan ýmislegt skemmtilegt til að setja inn á vefsíður. Er nú þegar búin að prófa nokkra hluti eins og bakgrunnshljóð, sprettiglugga, tilkynningarglugga og bólur sem flakka út um alla síðu.
Á föstudaginn var ég síðan með Ester í Gagnasmiðjunni. Það smá síast inn af fróðleik - mjög fínt.