Ég er búin að vera svo löt við að skrifa hérna að það mætti nú endurskíra dagbókina og kalla hana frekar mánaðarblogg eða árbók. Nú á reyndar að reyna að bæta úr þessu og halda utanum vettvangsnámið mitt sem hófst í gær. Ester Ósk, hjá gagnasmiðju KHÍ var svo indæl að taka mig að sér og leyfa mér að fylgjast með starfinu sem þar fer fram. Ég þarf að skila 100 tímum og það verður svolítið erfitt þar sem ég er náttúrulega föst í kennslu alla daga og svo með kennarana í FS í aðstoð líka, en ég kemst þó flesta föstudagseftirmiðdaga fram á vor og einhverja daga þegar ekki er bein kennsla. Síðan ætti ég að geta haft meiri tíma í maí þegar prófatíminn byrjar.
Dagurinn í gær var sérdeilis fínn. Ester fór yfir væntingar mínar og bakgrunn, gekk síðan með mér um húsakynnin og kynnti mig fyrir starfsfólki smiðjunnar. Þá kom einnig inn kennari sem þurfti aðstoð við að klippa til efni sem var tekið upp í Camtasia sem kennarar nota til að taka upp efni fyrir fjarnemendur. Þetta er öflugt skjá- og hljóðupptöku forrit sem stöðugt fleiri kennarar eru farnir að nota. Hún sýndi mér hvernig þetta virkar og leyfði mér að prófa að klippa til og setja þetta inn á heimasíðu skólans. :-) Síðan settum við upp upptökubúnaðinn hjá öðrum kennara sem þurfti einnig að taka upp. Þá lét hún mig setja upp prufu í Microsoft Producer. Ég hafði nú prófað það áður en ekki lagt neinn metnað í það. Það var mjög gott að fara í gegnum það ferli.
Ég var mjög ánægð með þetta allt saman. Ester Ósk er alveg fædd í þetta hlutverk að leiðbeina og hefur alveg yndislega útgeislun.
Við hættum kl 16, enda allt orðið rólegt svona í lok vikunnar. Vona að ég komist til hennar aftur núna í þemavikunni og geti skilað aðeins fleiri tímum.
Meira seinna.
laugardagur, febrúar 18, 2006
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
