þriðjudagur, ágúst 08, 2006

Sjóstöng

Er búin að reyna að setja inn færslur með krækjum en Blogger hefur alltaf frosið þegar kemur að því að senda herlegheitin og svo gleymir maður að taka afrit af færslunni og allt er horfið - þvílíkur pirringur. Nú er öryggið í fyrirrúmi og allt afritað áður en smellt er á Publish eða vistað sem uppkast.
Jæja hvað um það hér er slóðin að síðunni hjá pabba og mynd af aðal aflaklónni sem var tekin þegar við fórum á veiðar í júlí.

Er að klappa lokaverkefninu mínu - meira seinna.

miðvikudagur, júlí 05, 2006

Lokaverkefni og rigning

Var búin að skrifa heilmikla færslu, setja inn myndir og alles, svo þegar ég smelli á publish þá frís allt og ég gleymdi að taka afrit. Ekki í fyrsta skipti - þarf að reyna að muna þetta því þetta er svolítið mikið pirrandi. Blogger er bara ekkert að ráða við þetta greinilega.
Lokaverkefnið gengur hægt og bítandi. Það er seinunnið að taka þetta svona upp í Captivate og svo þarf ég að snurfusa þetta fram og tilbaka, taka út öll uhm og ohm og svoleiðis áður en ég get vistað þetta í verkefnamöppunni góðu, en hvað um það ég er bara þokkalega sátt við að hafa haft þessa rigningu því ekki er gott að sitja inni yfir tölvunni þegar úti er sól og blíða - sorry!!
En ég er nú búin að kíkja aðeins upp frá tölvunni og fara á sjóinn með pabba. S.l. laugardag var fjölskylduferð og vegna þess að smáfólkið fór með fórum við bara út að Helguvík og veiddum heilan helling. Mest af ufsa og smáýsu og nokkra góða þorska. Prófaði að grilla ufsann á ýmsa vegu og það var hið mesta hnossgæti. Vil bara benda fólki á að ufsinn á örugglega eftir að taka við af skötuselnum þegar fram líða stundir. Hér áður fyrr þá var honum bara hent, en þegar útlendingarnir átu hann með bestu lyst fórum við að prófa og viti menn - hann var bara ágætur. Held að þetta verði þannig með ufsann. Prófið bara!!

mánudagur, júní 26, 2006

Dagmar ömmustelpa

Náði ekki að setja myndirnar inn hérna að framan svo nú er að prófa aftur.
Hérna erum við Dagmar með Sóldísi frænku í kvennahlaupinu.


Fyrsti verðlaunapeningurinn:

Dagmar er algjör "pottormur" og þykir fátt skemmtilegra en að fá að sulla og busla - spurning hverjir skemmta sér best ;-)

Jú annars - hengirúmið!! það er ótrúlega skemmtilegt að róla sér í því:

laugardagur, júní 24, 2006

Tíminn flýgur hratt

Ýmislegt hefur nú gerst síðan ég skrifaði hérna síðast. Bandaríkjadvölin var algjör sæla. Held að Arnar sé með verslunargenin mín því hann sló mér alveg við í mollunum. Eftir páska var rúm vika eftir í skólanum og síðan tóku prófin við. Ég náði að ljúka vettvangsnáminu mínu hjá Ester í Gagnasmiðju KHÍ þarna seinni partinn í maí. Það var rosalega fínt. Ester er náttúrulega algjör engill og snillingur - lærði heilan helling hjá henni.
Njörður kom heim 23. apríl - gerði lokaverkefni í HR með hópnum sínum og fékk 10 (að sjálfsögðu). Guðrún og Dagmar komu síðan í lok maí og ég fékk að hafa ömmu stelpuna mína og kynnast þessari yndislegu veru. Tíminn líður svo hratt að fyrr en varði voru þau farin og við sitjum eftir og yljum okkur við minningar og myndir.
Nú er að bretta upp ermar og byrja á lokaverkefninu.

fimmtudagur, apríl 06, 2006

Páskafrí og gifting framundan.

Jæja þá er bara alveg að koma páskafrí. Verð bara rosalega fegin -er orðin svolítið lúin. Ætlum að skella okkur til Magga frænda sem býr á Long Island. Er búin að panta miða fyrir okkur á Blue mans group. Ég sá sýninguna að vísu í London í janúar, en hún er það góð að ég hlakka til að sjá hana aftur með strákunum mínum - algjör snilld. Svo ætlum við bara að hafa það huggulegt. Kíkja í bowling, golf, mollin og hvað það sem okkur dettur í hug.
Lokaverkefninu mínu í margmiðlunaráfanganum miðar frekar hægt. Ég er ekki alveg að ná sambandi við Mediator, en það kemur vonandi. Ætla þó að reyna að hvíla mig sem mest frá tölvunni á meðan ég er í USA (þó maður kíki aðeins þarna inn). Verð í vettvangsnáminu mínu hjá Ester allan daginn á morgun og ætla að hitta pottastelpurnar mínar úr Rafiðnaðarskólanum í hádeginu.
Svo eru aðal fréttirnar!! Helga og Svenni ætla að ganga í það heilaga 9.9.06. Byrja að undirbúa það strax og ég kem úr páskafríinu.
Ekki má gleyma því að Njörður kemur daginn eftir að við komum heim. Hef ekki séð strákinn minn í 10 mánuði - nema náttúrulega í vefmyndavél. Hlakka alveg rosalega til að geta knúsað sætasta stóra strákinn minn ;-)

mánudagur, mars 13, 2006

Staðlotan m.m.

Það var rosalega gaman og gagnlegt í staðlotunni. Lærði almennilega á Audacity forritið. Get nú farið að nota alls konar "fítusa" sem ég kunni ekki á áður. Fórum m.a. í heimsókn til Björgvins Ívars í Langholtsskóla. Hann sýndi okkur hvernig á að búa til leirkarla myndband. Sniðugur strákur hann Björgvin. Klippti svo myndskeiðið mitt en er ekki búin að ganga almennilega frá því. Þorvaldur sýndi okkur síðan ýmislegt skemmtilegt til að setja inn á vefsíður. Er nú þegar búin að prófa nokkra hluti eins og bakgrunnshljóð, sprettiglugga, tilkynningarglugga og bólur sem flakka út um alla síðu.
Á föstudaginn var ég síðan með Ester í Gagnasmiðjunni. Það smá síast inn af fróðleik - mjög fínt.

þriðjudagur, mars 07, 2006

Hin mörgu andlit Sunnu

Frábært hvað þessi stelpa er dugleg. Mátti til með að setja inn hérna nokkrar myndir af þessari elsku. Óskum henni góðs gengis í 6 manna úrslitunum.




Næsta staðlota

Jæja þá er næsta staðlota á morgun og fimmtudag þar sem við eigum að fara yfir klippingu á myndskeiðinu okkar ásamt ýmsu öðru skemmtilegu. Ég tók upp myndskeið þar sem Stebbi fór með bílinn í gegnum bílaþvottastöðina. Ætlaði síðan að setja þetta yfir á disk til að fara með í skólann á morgun, en hætti náttúrulega ekki fyrr en ég var bara búin að klippa þetta allt saman til og ganga frá verkefninu. Sé til á morgun hvort þetta er nógu gott hjá mér. Finnst þetta full stór skrá - hlýtur að þurfa að minnka þetta eitthvað svo hægt sé að setja þetta á síðuna.
Fór á Lionsfund í kvöld. Það var frekar fámennt - greinilega margar í fríi. Hrund Hjaltadóttir var með mjög skemmtilegt erindi um leiðtogann. Þetta var fínn fundur og maturinn æðislegur.
Stefni á að vera með Ester á föstudaginn e.h. ef hún hefur tök á að taka á móti mér.

fimmtudagur, mars 02, 2006

Ýmislegt

Var búin að fá leyfi til að vera í vettvangsnáminu á þemadögum sem voru í síðustu viku. Var með Ester á miðvikudeginum fram til hálf sex. Það var útsending úr Bratta þar sem Hólmfríður Árnadóttir flutti erindið: "Hvernig getur kennari í grunnskóla aðstoðað og komið til móts við nemanda með sértæka málþroskaröskun." Þetta var virkilega skemmtilegt - bæði að hlusta á fyrirlesturinn, sem var mjög fræðandi og fylgjast með Ester í tæknimálunum. Á fimmtudeginum og föstudeginum fór ég ekki inn í kennó því Ester var veik. Fór því í FS og fylgdist með þemavinnunni, þar sem ég hafði ekkert sérstakt hlutverk. Notaði tímann til að ganga frá miðannarmati.
Á morgun er UT2006 sem verður haldin í Fjölbrautaskóla Snæfellinga þar sem fjallað verður um sveigjanleika í skólastarfi. Hitti þar vonandi samnemendur mína og aðra "kollega".
Er aðeins farin að prófa Flash með Starfsbrautinni. Þau eru alveg himinlifandi, en ég er ekki nógu klár í þessu sjálf ennþá. Það þýðir ekkert annað en að henda sér í djúpu laugina.
Svo er staðbundin lota í næstu viku - miðvikudag og fimmtudag - þá eigum við að koma með stuttmynd til að fullvinna. Fékk nú bara upptökuvél í dag að láni. Þarf að skila henni eins fljótt og mögulegt er þannig að ég þarf að demba mér í kvikmyndaleikstjórastólinn. Við máttum velja eitt af eftirfarandi atriðum: þvottur, sjálfstæði, lán. Ég valdi þvottinn og ætla að láta Undra vinna á kertavaxi. Set krækju hérna inn ef þetta heppnast hjá mér.

laugardagur, febrúar 18, 2006

Vorönnin m.m.

Ég er búin að vera svo löt við að skrifa hérna að það mætti nú endurskíra dagbókina og kalla hana frekar mánaðarblogg eða árbók. Nú á reyndar að reyna að bæta úr þessu og halda utanum vettvangsnámið mitt sem hófst í gær. Ester Ósk, hjá gagnasmiðju KHÍ var svo indæl að taka mig að sér og leyfa mér að fylgjast með starfinu sem þar fer fram. Ég þarf að skila 100 tímum og það verður svolítið erfitt þar sem ég er náttúrulega föst í kennslu alla daga og svo með kennarana í FS í aðstoð líka, en ég kemst þó flesta föstudagseftirmiðdaga fram á vor og einhverja daga þegar ekki er bein kennsla. Síðan ætti ég að geta haft meiri tíma í maí þegar prófatíminn byrjar.
Dagurinn í gær var sérdeilis fínn. Ester fór yfir væntingar mínar og bakgrunn, gekk síðan með mér um húsakynnin og kynnti mig fyrir starfsfólki smiðjunnar. Þá kom einnig inn kennari sem þurfti aðstoð við að klippa til efni sem var tekið upp í Camtasia sem kennarar nota til að taka upp efni fyrir fjarnemendur. Þetta er öflugt skjá- og hljóðupptöku forrit sem stöðugt fleiri kennarar eru farnir að nota. Hún sýndi mér hvernig þetta virkar og leyfði mér að prófa að klippa til og setja þetta inn á heimasíðu skólans. :-) Síðan settum við upp upptökubúnaðinn hjá öðrum kennara sem þurfti einnig að taka upp. Þá lét hún mig setja upp prufu í Microsoft Producer. Ég hafði nú prófað það áður en ekki lagt neinn metnað í það. Það var mjög gott að fara í gegnum það ferli.
Ég var mjög ánægð með þetta allt saman. Ester Ósk er alveg fædd í þetta hlutverk að leiðbeina og hefur alveg yndislega útgeislun.
Við hættum kl 16, enda allt orðið rólegt svona í lok vikunnar. Vona að ég komist til hennar aftur núna í þemavikunni og geti skilað aðeins fleiri tímum.
Meira seinna.