laugardagur, september 17, 2005

Staðan í dag

Jæja það hefur ekki verið skrifað mikið hérna í dagbókina mína síðustu vikur. Búið að vera nóg að gera svo sem.
Stelpurnar í stjórn 3F komu í heimsókn í morgun. Skoðuðum aðstöðuna fyrir málþingið í FS, borðuðum á Kaffi Duus og héldum stjórnarfund. Síðan kíktum við á Rána þar sem kvöldverður verður fram reiddur þann 14.10. og enduðum á Hótel Keflavík, þar sem hluti málþings gesta ætlar að gista. Þær voru bara hæstánægðar með þetta allt saman. Fjóla tók fullt af myndum, sem við fáum vonandi að sjá fljótlega.
Þegar ég kom heim voru Stebbi og Arnar búnir að þvo og bóna bílinn minn - ein ánægð með strákana sína.
Veðrið var svo gott svo ég dreif í því að setja niður haustlaukana í nýju beðunum fyrir framan pallinn. Hlakka til að sjá þetta allt í blóma þegar fer að vora.
Er skráð í tvo áfanga núna: Upplýsingatækni með fötluðu fólki og Rannsóknir, nýsköpun og þróunarstarf í UT. Líst mjög vel á hópana og er aðeins byrjuð að lesa.

Af Lionsvettvangi er það að frétta að við erum nýbyrjaðar á vetrarstarfinu. Búnar að ganga í hús og selja pokapésana - það gekk rosalega vel eins og alltaf og nú er allt á fullu að undirbúa vinkonukvöldið sem á reyndar að vera sama dag og málþingið verður þannig að ég get ekki verið með í þetta sinn þó ég sé í undirbúningsnefndinni. Erum búnar að fá Valgeir Guðjónsson sem aðalgest - hefði alveg viljað hlusta á þennan frábæra "strák". Matseðillinn er svo til tilbúinn - verðum með humarsúpu að hætti Imbu og Þórunnar ásamt brauði og kjúklingasalati. Létt og gott og gerum allt sjálfar þannig að kostnaðurinn verður í lágmarki.

Svo má nú ekki gleyma Idol stjörnunni okkar henni Sunnu. Hún syngur eins og engill þessi stelpa. Hérna er mynd af henni og Arnari þegar hún var að máta nýju fötin frá Mango sem hún var í á fyrstu áheyrnaprufunni.

Má til með að láta fylgja mynd af Suzönnu sem hélt til heimalands síns - Tékklands - núna í september. Við Stebbi "ættleiddum" hana fyrir þó nokkuð mörgum árum síðan þegar hún datt inn til okkar í gegnum menntamálaráðuneytið. Þá var hún 15 ára og langaði svo til þess að kynnast körfubolta á Íslandi. Við héldum að það yrði ekki mikið mál - hún hefur verið eins og farfuglarnir síðan. :-)