sunnudagur, desember 04, 2005

Desember!!

Það er kominn desember - meira að segja 2. í aðventu í dag og ekki eitt einasta jólaljós komið upp hjá mér. Held þetta hafi aldrei gerst áður!!, en svo bregðast krosstré sem önnur....
Er búin að senda inn allar einkunnir nemenda minna, þurfti að setja í fluggírinn svo ég gæti sinnt náminu mínu eitthvað. Var rosalega ánægð með flest allt mitt fólk. Þau stóðu sig eins og hetjur og gerðu þetta frábærlega vel. Hver er að kvarta yfir unga fólkinu í dag??
Annars var Sunna "hápunkturinn" í nóvember mánuði. Rúllaði upp Idolinu þessi elska - söng náttúrulega eins og hún er vön og þá var þetta ekki vandamál.

Má til að setja líka myndina af Arnari og Sunnu sem birtist í Séð og heyrt - eru þau ekki sætust??


Framundan er núna að ljúka við lokaverkefnið í ranný áfanganum. Á morgun ætla ég að skila lokaverkefninu í Upplýsingatækni með fötluðu fólki. Set krækju á það þegar ég er búin að koma því inn á síðuna mína og þið getið sagt ykkar álit á því!! Svo þarf ég að skorða mig af og lesa og vinna verkefnin í leshringnum - púff - held ég skreyti bara fyrir næstu jól - læt nægja að kveikja á kertum núna :-)
Var að tala við ömmu stelpuna mína í Kanada. Hún er aldeilis að verða mannaleg. Hún er dugleg að skríða um allt, skoða ofaní allt sem hún kemst í og helst að hella öllu á gólfið. Ætli hún verði ekki farin að labba eftir nokkra daga?? Nóg að gera hjá Nirði mínum. Guðrún er öllum stundum í skólanum að ljúka við verkefni og próf fyrir jólin. Þetta fer nú alveg að verða búið hjá henni. Svo er Eva að fara í síðasta prófið sitt á þriðjudaginn og útskrifast svo í janúar sem viðskiptafræðingur. Stebbi skrapp til Belgíu í nokkra daga á vegum ráðuneytisins og Helga Björk er komin á sportara eins og pabbinn - rosalega flottur bíll.
Það væri synd að segja að fjölskyldan hefði ekki í nógu að snúast.

þriðjudagur, nóvember 01, 2005

Ýmislegt

Jæja langt síðan eitthvað hefur verið sett hérna inn. Slæmt þegar börnin eru farin að kvarta yfir því að mamman sé ekkert að blogga - hvernig þetta sé eiginlega með gömluna!!
Það hefur nú ýmislegt gerst á þessum mánuði. Við héldum málþingið með pompi og prakt - alveg rosalega flott og vel heppnað. Hér er hægt að skoða myndir frá þinginu og náttúrulega síðuna sjálfa.
Svo var opinn dagur í skólanum hjá okkur í FS. Það var boðið uppá stuttar kennslustundir þar sem fólk gat gengið á milli og fylgst með eða tekið þátt og síðan voru uppákomur um allan skólann. Mjög líflegur og skemmtilegur dagur.
Haustfríið byrjaði síðan kl 11 miðvikudaginn 26.okt. og héldu flestir starfsmenn skólans upp í flugstöð Leifs Eiríkssonar og stefnan tekin á kóngsins Kaupmannahöfn þar sem við fórum í skólaheimsóknir - rosalega skemmtileg ferð. Komum aftur á sunnudeginum, endurnærð og margir með nýjar og ferskar hugmyndir. Veðrið úti var mjög fínt - hiti 14 -15 stig á meðan allt var á kafi hérna í snjó og vonskuveðri.
Nú er bara að bretta upp ermar og geysast yfir námsefnið sem eftir er með mínum nemendum svo ekkert verði nú eftir áður en des. gengur í garð og leggja fyrir prófin sem eftir eru. Svo er það námið mitt - púff - þarf að gefa mér tíma í það.
Ömmustelpan mín er aldeilis að stækka - er komin í alls konar dulargervi -

og ekki nema tæplega níu mánaða. Hún er náttúrulega flottust!!
kv. Obba

þriðjudagur, október 04, 2005

Æfing í vefdagbókarfærslu

Þetta er báturinn hans pabba.

laugardagur, september 17, 2005

Staðan í dag

Jæja það hefur ekki verið skrifað mikið hérna í dagbókina mína síðustu vikur. Búið að vera nóg að gera svo sem.
Stelpurnar í stjórn 3F komu í heimsókn í morgun. Skoðuðum aðstöðuna fyrir málþingið í FS, borðuðum á Kaffi Duus og héldum stjórnarfund. Síðan kíktum við á Rána þar sem kvöldverður verður fram reiddur þann 14.10. og enduðum á Hótel Keflavík, þar sem hluti málþings gesta ætlar að gista. Þær voru bara hæstánægðar með þetta allt saman. Fjóla tók fullt af myndum, sem við fáum vonandi að sjá fljótlega.
Þegar ég kom heim voru Stebbi og Arnar búnir að þvo og bóna bílinn minn - ein ánægð með strákana sína.
Veðrið var svo gott svo ég dreif í því að setja niður haustlaukana í nýju beðunum fyrir framan pallinn. Hlakka til að sjá þetta allt í blóma þegar fer að vora.
Er skráð í tvo áfanga núna: Upplýsingatækni með fötluðu fólki og Rannsóknir, nýsköpun og þróunarstarf í UT. Líst mjög vel á hópana og er aðeins byrjuð að lesa.

Af Lionsvettvangi er það að frétta að við erum nýbyrjaðar á vetrarstarfinu. Búnar að ganga í hús og selja pokapésana - það gekk rosalega vel eins og alltaf og nú er allt á fullu að undirbúa vinkonukvöldið sem á reyndar að vera sama dag og málþingið verður þannig að ég get ekki verið með í þetta sinn þó ég sé í undirbúningsnefndinni. Erum búnar að fá Valgeir Guðjónsson sem aðalgest - hefði alveg viljað hlusta á þennan frábæra "strák". Matseðillinn er svo til tilbúinn - verðum með humarsúpu að hætti Imbu og Þórunnar ásamt brauði og kjúklingasalati. Létt og gott og gerum allt sjálfar þannig að kostnaðurinn verður í lágmarki.

Svo má nú ekki gleyma Idol stjörnunni okkar henni Sunnu. Hún syngur eins og engill þessi stelpa. Hérna er mynd af henni og Arnari þegar hún var að máta nýju fötin frá Mango sem hún var í á fyrstu áheyrnaprufunni.

Má til með að láta fylgja mynd af Suzönnu sem hélt til heimalands síns - Tékklands - núna í september. Við Stebbi "ættleiddum" hana fyrir þó nokkuð mörgum árum síðan þegar hún datt inn til okkar í gegnum menntamálaráðuneytið. Þá var hún 15 ára og langaði svo til þess að kynnast körfubolta á Íslandi. Við héldum að það yrði ekki mikið mál - hún hefur verið eins og farfuglarnir síðan. :-)

mánudagur, ágúst 08, 2005

Í Lónsöræfum


Göngugarpurinn
Originally uploaded by Obba1.
Fornámshópurinn fór í Lónsöræfin. Veðrið alveg eins og best verður á kosið. Ógleymanleg ferð.




www.flickr.com


This is a Flickr badge showing photos in a set called Lónsöræfi. Make your own badge here.




fimmtudagur, júlí 28, 2005

Keilir - toppurinn á tilverunni


Toppurinn
Originally uploaded by Obba.
Það var svolítið næðingssamt þarna uppi, enda vorum við 380 metrum fyrir ofan sjávarmál.

Keilir


Keilir framundan
Originally uploaded by Obba.
Við Gauja gengum á Keili í gær í frábæru veðri. Lögðum af stað rúmlega 16:00 og vorum komnar heim 19:30. Það tók lengstan tímann að labba yfir hraunið að fjallinu - eða um 50 mín. Vorum hálftíma upp á toppinn - enda ekki í formi. Gleymdum því miður að taka með okkur göngustafina og það varð til þess að stundum fórum við 3 skref áfram og 2 aftur á bak þarna efst í skriðunum.
Allan tímann sem við vorum þarna var herþyrla á sveimi við Höskuldarvelli og yfir fjallgarðinum. Ýmist lentu þeir á völlunum eða sveimuðu yfir toppunum þarna, líklegast við Spákonuvatn eða Grænavatn. Við vorum að grínast með að Clint Eastwood væri byrjaður að mynda á svæðinu og við fengjum nú kannski aukahlutverk eins og ungviðið okkar á svæðinu. Arnar fór t.d. í morgun. Hann á að leika hermann, en þar sem hann er með smá hárlubba þurfti hann að byrja á því að fara í klippingu. Hlakka til að hitta hann seinni partinn í dag og fá að heyra allt um hvernig þetta gengur fyrir sig í "Suðurnesjawood"
Hins vegar þarf Örvar tengdasonur ekki að fara í klippingu. Hann var löngu tilbúinn, enda skipulagður þessi elska.

laugardagur, júní 25, 2005

Brúðkaup Guðrúnar og Njarðar


BrudkaupNjardar 020
Originally uploaded by Obba1.
Nokkrar myndir frá brúðkaupi Guðrúnar og Njarðar sem fór fram í Reykholtskirkju 11. júní 2005. Veislan var að Fitjum í Skorradal.

A pallinum


A pallinum
Originally uploaded by Obba1.
Sunna, Guðrún, Helga Björk, Njörður, mamma og Arnar í góða veðrinu á 17. júní

Hitti Elvis


Hitti Elvis
Originally uploaded by Obba1.
Hitti Elvis óvænt á kvennakvöldinu hjá UMFN í apríl

AmmaOgDagmar


AmmaOgDagmar
Originally uploaded by Obba1.
Hérna erum við Dagmar í góðum gír.

Gudrun og Dagmar


Gudrun og Dagmar
Originally uploaded by Obba1.
Hérna eru mæðgurnar á 17. júní

Flickr

This is a test post from flickr, a fancy photo sharing thing.

föstudagur, júní 24, 2005

Brjálað að gera - þó kennslan sé búin í bili.

Veit sagt að segja ekki hvernig tíminn getur liðið svona hratt. Ætlaði að hafa nógan tíma til að læra, reita arfa, mála gluggana, vera í sólbaði, fara í ræktina og ég veit ekki hvað og hvað. Ég hef lítið gert af þessu - hef varla tíma til að læra. Er kannski svona rosalega óskipulögð!!
Það er nú skýring á þessu að hluta til. Njörður kvæntist sinni heittelskuðu núna í júní og herlegheitin fóru fram í Borgarfirðinum. Þau voru gefin saman í Reykholtskirkju og síðan var veislan að Fitjum í Skorradal. Þau eru náttúrulega á samningi hjá himnaföðurnum, því veðrið var stórkostlegt. Myndirnar sem voru teknar af brúðhjónum og fjölskyldu á miðnætti með fjallasýnina í baksýn voru eins og póstkort.
Amman var nú ekki lengi í paradís með litlu sonardótturina - þau fóru til Kanada í gær og verða þar í tvö ár. Það er nokkuð ljóst hvert næsta utanlandsferð verður farin.
Jæja nóg um það - ég fylgist með þeim á blogginu.

Annars miðar nú svolítið í náminu - læt það hafa forgang í flestum tilfellum. Er núna að bíða eftir svari frá hótelunum hérna í Reykjanesbæ hvort þau hafi áhuga á því að bjóða uppá tilboð til þeirra sem koma á málþingið sem hópurinn er að skipuleggja í október.
Meira fljótlega.

miðvikudagur, maí 25, 2005

Sumartörn - sorg - lífið

Sé að margir eru duglegir að halda áfram að skrifa í dagbókina og minntist þá orða Will Richardsson um sína nemendur, en það kom honum mikið á óvart að nemendur hættu að skrifa í vefdagbókina þegar námi lauk. Hann uppgötvaði í raun að flestir nemendur héldu dagbók fyrir kennarann en ekki fyrir sig. Hann er einn af þessum mönnum sem hafa þetta sem lífsstíl og finnst annað ótækt, enda er hann greinilega mikill hugsjónamaður og er hluti af bloggsamfélagi sem miðlar upplýsingum og hugleiðingum sín á milli á þessum skemmtilega miðli.
Ég er búin að uppgötva það að ég er ennþá þarna einhvers staðar á milli - er ekkert að skrifa nema ég hafi þörf fyrir það. Svo getur vel verið að það breytist með tíð og tíma og allar flóðgáttir hugsana og afreka rati inn á vefinn!! - hver veit?

Annars erum við kennarar og starfsfólk í FS gjörsamlega miður okkar vegna skyndilegs fráfalls samkennara okkar Gísla Torfasonar. Þessi hressi og káti strákur, sem greiddi götu ótal nemenda og var hvers manns hugljúfi - bara dáinn fyrirvaralaust - enginn aðdragandi. Enn og aftur erum við minnt á hve lífið er hverfult og hvað við þurfum að nota tímann vel. Tveim dögum áður héldum við síðasta kennarafund á þessu starfsári og þar var Anna Lea Björnsdóttir fundarstjóri. Í lok fundarins bað hún alla viðstadda að snúa sér að næsta manni, faðma hann og segja viðkomandi hve vænt okkur þætti um hann. Bara þetta litla atriði hjálpaði okkur öllum þegar áfallið kom og við vorum henni afar þakklát - en svona er þessi elska - alveg frábær.

laugardagur, apríl 30, 2005

Captivate - stillingaratriði

Ja hérna ja.......... ég er að nota Captivate í lokaverkefninu mínu - sem er í sjálfu sér ekki frásagnarvert, nema hvað ég var að fikta eins og vanalega og þá fór allt í hund og kött. Sýningin stoppaði alltaf á einhverjum tímapunkti og það þurfti að smella á hnapp til að láta hana halda áfram að ganga. Ég var búin að senda póst út um borg og bý, leita í hjálpinni, fara á heimasíðu Captivate og prófa sjálf, en ekkert gekk. Enginn kannaðist við þetta vandamál. Ég hundpirruð vegna þess að ég gat ekki haldið áfram á meðan ég fann ekki lausnina og 1. maí á morgun!!!!!!!!!!! - skiladagur!! - og margir dagar (eða hluti af dögum) farið í þessa leit.
Held ég hafi nú dottið niður á rétta hakið rétt í þessu þannig að vonandi get ég nú haldið áfram :-)
Þannig að ef einhver sem er búinn að fikta í Captivate og lenda í líkum vandræðum skildi nú detta inn á þessa vefdagbók, þá er bara að hafa samband og spara sér tíma og hárreyting ;-)

sunnudagur, apríl 24, 2005

Gleðilegt sumar

Gleðilegt sumar!!!! Það er alveg ótrúlegt hvað veðrið hefur mikið að segja. Sólin og hitinn léttir lund og fyllir mann af orku og bjartsýni. Annars vegar kalla vorverkin og hins vegar hrópar lokaverkefnið. Ætli það sé ekki best að hafa einhverja hæfilega skiptingu þarna á milli svo allt sé í jafnvægi. Finnst það samt erfitt vegna þess að hvoru tveggja þarf mikinn tíma.

Annars smá silast þetta með lokaverkefnið. Veit samt ekki hvort ég næ að ljúka við allt á tilsettum tíma. Oftar en ekki taka smá atriði ótrúlega langan tíma og ekki lagast hlutirnir þegar netið er í hæga ganginum - örugglega vegna mikillar umferðar?? - eða það er ágætt að kenna því um.
Nú er bara þessi vika eftir í kennslu hjá okkur í framhaldsskólanum. Svo taka prófin við og frágangur.
Það er mikið að gerast allt í kringum okkur hérna á Grundarveginum. Það sem ber nú samt hæst tengjist eldri stráknum okkar honum Nirði. Hann varð pabbi, barnið var skírt og nú er verið að undirbúa brúðkaupið sem á að verða í júní. Allt gerist þetta með ör-tæknihraða. Það sem ég kvíði þó mest fyrir er að "missa" þau til Kanada nú í sumar þar sem á að stunda nám. En ég vona bara að sá tími verði jafn fljótur að líða og tíminn hingað til. Ég þakka nú samt forsjóninni fyrir þau forréttindi að vera uppi í dag og hafa alla þessa tækni til samskipta við þau og litlu ömmustelpuna mína hana Dagmar. Hvernig fóru ömmur að hérna áður fyrr???

fimmtudagur, apríl 14, 2005

Lokaverkefnið m.m.

Jæja lokaverkefnið er búið að gerjast í kollinum í þó nokkuð langan tíma. Jafnvel í draumi. Maður hrekkur upp með hjartslátt - "Guð ég er ekki enn búin að ákveða hvað á að gera." "Verð að fara að drífa í þessu og bara byrja."

Held ég sé komin niður á ágætis lausn á þessu núna - ætla að útbúa leiðbeiningar um Excel fyrir kennarana í skólanum hjá mér. Held reyndar námskeið um þetta í lok hverrar annar, þegar allir eru að reikna út vetrar- og skilaeinkunnir, þannig að það er alveg tilvalið að setja þetta upp í Capitvate og hafa þetta miðlægt þannig að fólk geti nálgast þetta á sínum tíma.

Annars var ég að kíkja inn á nýja Moodle kerfið sem Salvör var að senda, en gat ekki stofnað námskeið. þarf að kíkja betur á þetta.

þriðjudagur, apríl 05, 2005

Cyberspace

Var að vandræðast með þýðingu á þessu orði Cyberspace. Það kemur svo oft fyrir í greinum og einhvern veginn var ég aldrei með almennilega þýðingu á því. Fletti upp í Wiki og fann þar ágætis skýringar, en ekki íslenska orðið. Allt í einu kviknaði ljós - bling! Það skyldi þó aldrei vera að það væri nú til í hugtakabankanum hennar Sólveigar, með framúrskarandi skýringum. Það er nú einu sinni tilgangur bankans - er það ekki?? Ég ræsti síðuna, smellti á Ctrl og F - skrifaði leitarorðið og smellti á línubilshnappinn (enter). Jú mikið rétt - þarna var komin þessi ágæta skýring eftir Sigurð Fjalar Jónsson - Netheimur
- ég dæsti af feginleik og lofaði sjálfri mér að muna eftir hugtakabankanum næst þegar ég strandaði í útlenskunni.

mánudagur, apríl 04, 2005

DAGMAR

Hvað nefnist lítil prinsessa sem lítur dagsins ljós í dagrenningu og með hafið sem bakgrunn? Nafnaval foreldranna byggðist á þessari yndislegu skýringu og þegar presturinn spurði: "og hvað á barnið að heita?" fóru þau með frumsamið ljóð þar sem nafnið var gert opinbert í lok ljóðsins - DAGMAR.
http://www.gudrundavids.com/
Þetta var mögnuð stund þar sem skírnargestir felldu flestir tár.

Að því loknu sungum við Ó Jesús bróðir besti - og mér var hugsað til myndasögunnar þar sem Dagmar er myndefnið
http://nemendur.khi.is/thorgard/Video/Prinsessan_0001.WMV

Föðurbróðir hennar og kærasta - Arnar og Sunna - fluttu síðan lagið Líf, þar sem hann spilaði á gítarinn sinn og hún söng.

Þetta var fallegasta skírnarathöfn sem ég hef verið viðstödd og ég mun geyma hana í hjarta mínu um ókomna tíð.

miðvikudagur, mars 30, 2005

Páskalok

Ja hérna - það eins og páskafríið hafi byrjað í gær og svo er það bara búið - og ekki einu sinni gluggatjöldin komin fyrir stofuna þó svo saumavélin hafi komist í hús á góðum tíma. Svona er þetta bara. Þetta var nú samt góður tími, þó nóg sé eftir að gera á ýmsum stöðum.
Annars eru páskarnir önnur stærsta fjölskylduhelgi ársins, þannig að við nutum þess að hittast þrátt fyrir ófrágengna parketplanka og málningardollur.
Kennslan hefst síðan á morgun. Það verður gott að hitta nemendur aftur og takast á við að ljúka þessum áfanga. Þau eru flest búin að standa sig mjög vel.

Annars eru fréttir af ömmu stelpunni. Hún er rosalega dugleg að stækka og er algjör engill. Svo á hún að fá nafn næstkomandi laugardag. Foreldrarnir eru líkir okkur gamla settinu - gefa ekki neitt upp. Ég hlakka óskaplega til að fá að kalla hana nafni þrátt fyrir að það sé yndislegt að kalla hana dúlluna eða ömmustelpu. Skírnin fer fram á heimili móður foreldranna - að Grund í Skorradal. Það væri nú toppurinn ef almættið sæi sér fært að viðhalda góða veðrinu, svona í tilefni dagsins.

miðvikudagur, mars 23, 2005

Páskar m.m.

Páskafríið langþráða er runnið upp. Erum að standsetja stofuna - það gengur hægt og bítandi. Það er alltaf svo að þegar byrjað er á einhverju svona þá koma alltaf upp ófyrirséðir hlutir. Sendi saumavélina mína í viðgerð í síðustu viku og var lofað að hún yrði tilbúin fyrir páska svo ég gæti saumað nýju gluggatjöldin fyrir stofuna. Var búin að hringja nokkrum sinnum í verslunina sem sér um þetta og alltaf sagði konan að þetta yrði á tíma. Svo í dag þegar ég ætlaði að ná í hana þá hafði viðgerðarmaðurinn ekki fengið hana fyrr en í gær - hélt það lægi ekkert á þessu. Hann var hins vegar svo almennilegur og vatt sér í verkið. Talaði við hann kl 10 í kvöld og þá var hann búinn að laga vandamálið. Ég gat sent soninn til að sækja hana og fæ hana í fyrramálið. Þá vitið þið hvað ég verð að gera eftir hádegi á morgun - með laginu: Ein ég sit og sauma.
Er alltaf að hugsa um hvaða nem. ég eigi að fá til að fylgjast með í rannsókninni. Held það þurfi að bíða fram yfir páska héðan af. Er aðeins byrjuð að skoða lesefnið sem Sólveig lagði fyrir. Margt áhugavert þar - bara að gefa sér tíma. Sé að margir hafa verið mjög duglegir.

fimmtudagur, mars 17, 2005

Movie Maker verkefnið

Átti alltaf eftir að setja tengingu yfir á Movie Maker verkefnið á síðunni minni. Ég prófaði að vista það eins og Manfred talaði um, en það virtist vera of stórt, svo ég minnkaði það og þá gekk það - en fyrir vikið er myndin mjög smá.

Staðan

Staðan er þannig að námið hefur aðeins setið á hillunni undanfarið. Tíminn hefur farið í vinnuna, heimilið og fjölskylduna. Vorum að taka stofuna í gegn - mála og parketleggja. Enginn smá munur!!
Nú fer að koma páskafrí. Bara einn dagur eftir sem fer í starfshlaup hjá okkur í FS - rosalega skemmtilegur dagur. Hann er þannig að allir nemendur velja sig inn í 1 lið af 9. Hvert lið hefur sinn lit: gulur, rauður, grænn o.s.frv. Útskriftarkrakkarnir keppa síðan í öllum greinum sem eru kenndar í skólanum, ásamt fleiri þáttum s.s að búa um rúm, pokahlaup, reiptog, sund, hlaup, leggja á borð og margt fleira. Yngri nemendur velja sér síðan lið og hvetja þá sem eru að keppa. Það lið sem er fyrst að ljúka keppni með sem fæst refsistig fær pizzuveislu.
Vikurnar á undan eru útskriftarkrakkarnir að lokka nemendur og kennara til að vera í sínu liði og halda fundi og gera áætlanir. Allir kennarar hafa hlutverk s.s. tímavörslu, stigagjöf, útbúa þrautir, taka til það sem þarf í viðkomandi grein, keppa í kappáti fyrir ákveðið lið o.s.frv. Þetta er ákaflega skemmtilegur dagur og allir fara glaðir í páskafrí.
Einmitt páskafríið - sé það í hillingum til að ná upp lærdómnum! - ætlar maður ekki alltaf að gera allt á engum tíma?
Heyrumst fljótlega.

laugardagur, mars 05, 2005

Staðbundin lota -mars 2005

Jæja þá er þessi seinni lota á enda og við búin að læra heilmargt :-)
Þar á meðal er örkennslu verkefnið þar sem maður er náttúrulega hálf lummulegur, en við kippum okkur nú ekki upp við það.
Það var rosalega gaman í þessu öllu saman en það jafnast ekkert á við að hitta skólafélagana. Takk fyrir yndislega og skemmtilega samveru :-)
kv. Obb

mánudagur, febrúar 21, 2005

Fikt og vesen

Það fylgir fikti að týna hlutum, en jafnframt lærir maður aðeins meira. Ég fór nefnilega að fikta í útliti dagbókarinnar og týndi þá öllu sem var komið á undan. Nú er ég búin að setja gamla útlitið aftur á og það sem ég setti inn í millitíðinni er ekki lengur sýnilegt. Veit ekki alveg hvort fólk skilur þetta bull í mér, en .......ástæðan fyrir þessu fikti var að ég náði ekki að setja mynd hérna inn á síðuna eins og margir höfðu gert. Í nýja útlitinu heppnaðist það hins vegar - sá allar myndir sem ég tengdi frá Flicker. Ég hallast helst að því að ég hafi lent á eina sniðmátinu sem styður ekki þessa aðgerð!!!!!! eða hvað haldið þið?

Var að skoða dagskrá UT2005 og sá að Adda er með erindi um stafrænu myndavélina - frábært hjá þér Adda - til hamingju með það. Við Ida sóttum um að vera með erindi um vefdagbækur í kennslu, en það komst ekki fyrir - eða ef til vill er það orðin gömul lumma á örtölvuöld.
Það verður samt frábært að fá að njóta þess að hlusta á flott erindi á ráðstefnunni, fyrir nú utan það að hitta fullt af skemmtilegu fólki.
Jæja best að halda áfram að skoða verkefnin.
Kv. Obba

mánudagur, febrúar 14, 2005

Þá tekur námið við :-)

Þá er maður að komast í gírinn aftur. Er búin að fikta svolítið í Flicker og hélt mig vera með hlutina svona nokkurn veginn á hreinu - en það sannast bara alltaf það sem maður segir við nemendurna: "Gerðu hlutina minnst þrisvar sinnum - helst fimm sinnum."
Annars var ég að skoða annan svona myndavef sem dóttir mín notar á sínu bloggi - mjög þægilegt og aðgengilegt. Slóðin er: http://www.fotki.com/ - ef einhver vill prófa.
Kíkti líka inn á Del.icio.us - staldraði reyndar ekki lengi við.
43.things.com fannst mér svolítið sniðugur - þarna getur maður fundið aðila með sömu áhugamál og maður sjálfur, jafnvel fengið stuðning í eldamennskunni.
Best að kíkja betur á verkefnið sem Salvör setti okkur fyrir á 43.things

fimmtudagur, febrúar 10, 2005

Lítil ömmustelpa

Jæja stóra stundin rann upp í nótt - það mætti lítil ömmustelpa til leiks - fullkomin og yndisleg. Fékk senda mynd af henni í póstinum áður en hún var vigtuð og mæld. Þið ömmur og afar skiljið hvaða tilfinningar bærðust í brjósti mér ;-). Það versta er að litla fjölskyldan er uppi á Skaga og ég kemst ekki fyrr en á morgun.
Það var algjör snilld að vera búin að setja öll mikilvæg símanúmer inn í i-stikuna og geta sent hóp sms.
Sé að margir eru búnir að vera duglegir að sinna náminu. Ég fer nú að setja í fluggírinn fljótlega áður en maður fellur á tíma, en forgangsröðin þarf að vera rétt - ekki satt? - börnin fyrst og annað seinna :-)
Kv. Obba

miðvikudagur, febrúar 09, 2005

Amman og tangó

Hef verið fjarri góðu gamni í marga daga. Helgin hjá okkur hjónum fór í að dansa tangó og stofna Tangófélag Reykjaness. Þetta var eitthvað alveg nýtt hjá okkur hjónum, en alveg rosalega gaman.
Núna sitjum við gömlu hjónin og bíðum eftir símtali frá eldri syninum sem er að bíða eftir að verða pabbi. Hann hringdi reyndar í okkur í nótt sem leið og sagðist vera á leið með sína heittelskuðu á fæðingardeildina. Um morguninn þegar við vöknuðum voru skilaboð á símanum - false alarm - en nú er þetta bara að gerast. Erum að vona að þetta gerist eftir miðnætti því mamma á afmæli þann 10. Þetta er bara alveg ótrúlega spennandi.

Þessi sami sonur sagði mér frá nýjung í sms skilaboðum. Ég er kannski ekkert að segja ykkur ný tíðindi, en nú er hægt að senda mörgum sms í einu. - Vissuð þið þetta? Þetta er algjör snilld. Er náttúrulega búin að sitja við og tína inn símanúmer hjá öllum sem vilja fá fréttir af nýja ömmubarninu um leið og það gerist - haka síðan við, skrifa skilaboðin og smelli á send og ping pong ala cadabra (sbr. Ella Jóna) - allir fá skilaboð á sama tíma. - Ef þetta er ekki snilld..........

Ef þið viljið kíkja á þetta þá er slóðin þessi: http://www.i-stikan.is/


föstudagur, febrúar 04, 2005

Skil

Vefrallý -Að finna nám við hæfi.
Vefleiðangur til Kaupmannahafnar
Tæknisaga

Langar til að deila með ykkur skemmtilegu verkefni sem ég lét starfsdeildina vinna hjá mér í framhaldi af því að setja inn skiptimyndir (Swap Image). Þeim þótti þetta sérlega skemmtilegt, en ennþá skemmtilegra að búa til myndirnar sjálf. Lét þau vinna þetta í Paint forritinu - það er svo einfalt og þægilegt. Hérna er dæmið hennar Berglindar .

Kv. Obba

miðvikudagur, febrúar 02, 2005

Rss aftur

Jæja þá held ég sé búin að ná þessu með rss -ið. Það var ekki von að við fengjum það til að virka hérna í blogger, því það er greinilega ekki boðið upp á það, en það virkar í Hexia og blogcentral. Var að ræða um þetta við Idu áðan og auðvitað vissi hún allt um þetta ;-)
Er að hugsa um að búa til leiðbeiningar í teskeiðaformi (eins og ég þurfti) fyrir þá sem vilja. Í rauninni er þetta snilld, því þá getur maður fylgst með því sem er að gerast hjá útvöldum aðilum inni á sinni síðu.
Meira seinna.
Kv. Obba

þriðjudagur, febrúar 01, 2005

Vefleiðangurinn

Jæja vefleiðangurinn kominn svona að mestu held ég. Maður gleymir nú alveg stund og stað - bara hreinlega dettur inn í tölvuna. :-S
Hef áhuga á því að vinna hann áfram með dönsku kennurunum. Vona að það komi vel út.
Þá eru það bara næstu verkefni!!!!!!!!!!!

sunnudagur, janúar 30, 2005

Myndir og teljari

Alltaf eitthvað nýtt að gerast. Hélt mér hefði tekist að setja teljara inn á bloggið, en hann er ekki enn kominn fram þó ég sé búin að "gefa síðuna aftur út". Þetta hlýtur að skýrast. Einnig virkjaði ég Flikr og útbjó myndaræmu sem ég setti á siðuna mína. Svo bætist vonandi við þetta með tíð og tíma.
Annars er ég búin að sitja límd við tölvuna alla helgina og enn eftir að gera heilmikið. Sé nú samt til hvað ég verð lengi frameftir. Ætla að skella mér í pottinn fyrir svefninn, setja nuddið á og setja freyðikúlu í hann. Það ætti að taka stressið úr öxlunum.

Viðhengið:-(

Það gekk ekki að senda viðhengið í gegnum póstinn. Er að athuga hvort hægt sé að nota bloggið sem skilasíðu fyrir verkefni nemenda. Er einhver búinn að prófa þetta hérna inni? Veit að þetta er hægt á Hexia - mjög flott.
Svo er ég líka að vesenast í rss. Fæ þetta ekki til að virka. Stundum þarf maður bara að fá allt í teskeiðaformi ;-)

laugardagur, janúar 29, 2005

Póstblogg og viðhengi

Nú er ég að skoða hvernig þetta kemur út þegar ég sendi viðhengi inn á vefdagbókina mína.
 
Kveðja,
Þorbjörg Garðarsdóttir,
Fjölbrautaskóla Suðurnesja,
s. 421-3100 / 898-0552

Prufa í póstbloggi

Var að stofna póstblogg á síðunni minni og er að prófa það hér með. Er ekki tilveran dásamleg??
 
Kær kveðja
Obba

Vefrallý tilbúið

Dreif mig í að útbúa vefrallýið áðan. Þetta hefur verið að gerjast í kollinum á mér síðan í staðlotunni - það er af svo mörgu að taka. Ákvað að hafa þetta verkefni sem fornámið mitt getur síðan unnið áfram. Er jafnvel að hugsa um að búa til hópblogg fyrir þau þar sem þau eiga að skila niðurstöðunum sínum inn ásamt fleiru í framhaldinu. Held það gæti verið spennandi.

miðvikudagur, janúar 26, 2005

Tölvan - sjónvarpið

Einn samkennari minn dró upp úr farteskinu sínu í morgun örlítið tæki sem hann tengdi við tölvuna sína með USB tengi. Loftnet var á tækinu. Þegar hann kveikti á þessu gat hann flakkað á milli sjónvarpsstöðva!!!! - og þetta var bara fín mynd. Voruð þið öll búin með tæknisöguna ykkar??? Ef til vill var einhver á fyrri námskeiðum sem sá þetta fyrir. Við lifum sko sannarlega á tækniöld.

sunnudagur, janúar 23, 2005

Verð bráðum amma

Það er stór stund framundan hjá Nirði mínum og Guðrúnu - hans heittelskuðu. Þau eru að verða foreldrar eftir nokkra daga, sem þýðir að við Stebbi verðum amma og afi. Þetta verður fyrsta barnabarnið og því mikil tilhlökkun. Við fylgjumst grannt með þar sem tilvonandi móðir skrifar reglulega á blogg síðuna sína: http://www.gudrundavids.com/

Best að halda áfram

Jæja nú er maður búinn að vera í allt öðru en að sinna náminu. Það var mikið að gera í vinnunni eftir London ferðina. Hélt nú að nemendur mínir hefðu verið að sinna því sem ég setti þeim fyrir, en það voru ekki nema einstaka sem gerðu það. Svo nú er bara allt sett á fullt til þess að halda áætlun annarinnar.
Við hjónin fórum á þorrablót Ungmennafélagsins á föstudaginn. Það var mikið stuð og góður matur eins og alltaf. Föðurbróðir minn - Maggi - sem bý í Bandaríkjunum var á landinu og bauð hálfri ættinni á blótið. Honum finnst þetta svo skemmtilegt því þarna hittir hann Njarðvíkinga og brottflutta. Ekki amalegt. Annars byrjaði ég að mæta á þorrablót 16 ára með fjölskyldunni og pabbi kenndi mér gömlu dansana. Síðan hef ég helst ekki látið það falla niður ef ég hef mögulega getað.
En nú er best að fara að gera eitthvað svo maður nái nú öllu fyrir tilsettan tíma.

þriðjudagur, janúar 18, 2005

Frítt námskeið

Meira um Bett.
Á þessari sýningu fær fólk allt mögulegt í pokann sinn. Eitt af því sem datt ofaní minn var frír aðgangur að sýnikennslu í nokkuð mörgum forritum. Eini gallinn er sá að þetta er tímabundið, en þið sem lesið þetta hjá mér skuluð drífa ykkur að kíkja þarna og athuga hvort eitthvað höfðar til ykkar. Slóðin er: http://www.atomiclearning.co.uk/ og notendanafnið er: bett05 - leyniorðið er: atomic
Góða skemmtun.

mánudagur, janúar 17, 2005

rss

Nú er ég að prófa að setja upp rss tengingu.

sunnudagur, janúar 16, 2005

Komin heim frá London

Jæja þá er maður lentur á klakanum aftur. Það var frábært í London. Bett sýningin var góð að vanda. Það kvikna alltaf nýjar hugmyndir eftir svona hressilega hugstormun. Hefði helst viljað hafa alla þarna hjá mér sem eru í náminu með mér. Það hefði verið toppurinn. Kom heim með fullt af forritum, bæklingum og alls konar upplýsingum sem tengjast upplýsingatækni.
Segi meira frá þessu seinna.

miðvikudagur, janúar 12, 2005

Farin til London

Jæja þá er ég farin til London. Ætla að skoða Bett sýninguna. Hlakka mikið til. Fór í fyrra og hafði mikið gagn og gaman af.

þriðjudagur, janúar 11, 2005

Seinni dagur í staðlotu 2

Byrjuðum daginn hjá Sólveigu. Hún var að undirbúa okkur fyrir námskeiðið hennar í mars. Fórum síðan til Salvarar og æfðum okkur í Hot Potatoes og Front Page.
Núna erum við að búa til þetta blogg sem við ætlum síðan að nota í þessu námi.