Jæja það hefur nú ekki mikið gerst hérna í rúmt ár. Ef til vill fékk ég bara of stóran skammt af tölvuviðveru eða ef mig minnir rétt þá var ég orðin svolítið pirruð á veseni á blogger ;-) Kerfið var að frjósa í tíma og ótíma, erfitt að koma inn myndum. Kannski að maður prófi aftur og sjái hvernig gengur núna.
Sumarið er búið að vera alveg meiriháttar. Búin að fara 2svar til Finnlands, sumarhús í Eyjafjarðarsveitinni með fornámsliðinu mínu og síðan fjölskyldunni og svo fórum við gamla settið á Þjóðhátíð í Eyjum. Það var nú alveg kominn tími á okkur að kíkja á þá Eyjamenn - öll börnin okkar búin að dásama hátíðina, þrátt fyrir ofsarok og blautviðri svo við ákváðum að slá til - svona til að halda uppi fjölskylduhefðinni því þau eru náttúrulega hætt að fara. Það var ekki að spyrja að því - veðrið var eins og best var á kosið, rjómablíða og sól og við í frábærum félagsskap.
Er búin að vera á Wiki námskeiði hjá Salvöru Gissurardóttur í 2 daga. Alveg frábært hjá henni eins og venjulega. Maður þarf nú bara að vera í námskeiða áskrift hjá henni því hún fylgist svo vel með.
En nú fer alvaran að taka við - skólinn að byrja svo nú þarf að bretta upp ermar.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

1 ummæli:
Sæl Obba.
Velkomin aftur á bloggið. Ég fjallaði um námskeiðið hjá Salvöru á heimasíðunni minni www.fjola.net
Þetta var alveg glæsilegt námskeið hjá henni Salvöru eins og hennar var von og vísa.
Kveðja,
Fjóla
Skrifa ummæli